Körfubolti

Nelson missir úr nokkrar vikur

Jameer Nelson
Jameer Nelson AP

Stjörnuleikmaðurinn Jameer Nelson hjá Orlando Magic verður frá keppni í nokkrar vikur vegna axlarmeiðsla sem hann hlaut í leik á mánudagskvöldið.

Eftir skoðun kom í ljós að Nelson þyrfti helst að fara í aðgerð, en það myndi þýða að hann gæti ekki spilað meira á leiktíðinni. Hann ætlar að sjá til næstu daga og athuga hvort endurhæfing sé raunhæfur kostur.

Leikstjórnandinn ungi hefur verið ein helsta ástæða góðs gengis Orlando í vetur en liðið hefur unnið 36 leiki og tapað aðeins 11. Hann skorar 16,7 stig að meðaltali í leik og er á fjórða ári í deildinni.

Nelson var á dögunum valinn í stjörnuliðið í fyrsta sinn á ferlinum en nú er ljóst að hann á ekki eftir að geta tekið þátt í leiknum sem fram fer í Phoenix þann 15. febrúar.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×