Körfubolti

Wade ekki tilbúinn að framlengja hjá Miami Heat

Ómar Þorgeirsson skrifar
Dwyane Wade.
Dwyane Wade. Nordic photos/AFP

Stjörnubakvörðurinn Dwyane Wade hjá Miami Heat hefur staðfest að hann sé ekki lengur í viðræðum við félagið um framlengingu á núverandi samningi sínum.

Fregnirnar koma ekki sláandi á óvart þar sem Wade var búinn að gefa til kynna að hann væri ekki líklegur til þess að skrifa undir þriggja ára samninginn sem lá á borðinu hjá forráðamönnum Heat.

Hinn 27 ára gamli Wade getur losnað undan samningi hjá Heat eftir komandi tímabil og reynt að komast að hjá öðru félagi á frjálsri sölu næsta sumar en hann leiddi deildina síðasta vetur í stigaskori að meðaltali í leik með 30,2 stig.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×