Körfubolti

Obama spáir Lakers titlinum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Obama þykir liðtækur í körfubolta.
Obama þykir liðtækur í körfubolta. Nordic Photos/Getty Images

Barack Obama Bandaríkjaforseti er mikill áhugamaður um körfubolta og þykir liðtækur spilari sjálfur. Blaðamenn ytra eru þess utan duglegir að spyrja hann spurninga um íþróttalífið í landinu og að sjálfsögðu er búið að spyrja hann að því hverju hann spái í úrslitarimmu Lakers og Magic.

„Ég held að Lakers muni hafa þetta í sex leikjum," sagði Obama brosandi við blaðamenn.

Stuðningsmenn Lakers gleðjast eflaust yfir þessum spádómi enda spáði Obama einnig í háskólakörfuboltann á dögunum og hafði þá rétt fyrir sér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×