Tónlist

Pólitískur trommari

Dave Rowntree
Dave Rowntree

Dave Rowntree, trommuleikari bresku hljómsveitarinnar Blur, hyggst endurvekja pólitískan feril sinn þegar hljómsveitin hefur lokið tónleikum sem bókaðir hafa verið í sumar. Eftir að hljómsveitin lagði upp laupana árið 2003 hellti Rowntree sér út í pólitík. Hann bauð sig fram fyrir Verkamannaflokkinn í sveitarstjórnarkosningum árin 2007 og 2008.

Rowntree náði ekki markmiðum sínum í kosningunum en hefur þó ekki gefist upp. Hann lauk nýverið námi í lögfræði og hefur verið valinn sem fulltrúi Verkamannaflokksins í næstu þingkosningum. Trommarinn stefnir því að því að ná þingsæti eftir tónleikaferð Blur í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.