Körfubolti

Breyting á körfuboltaútsendingum hjá Stöð 2 Sport

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Lakers og Houston munu halda áfram að slást á sunnudag.
Leikmenn Lakers og Houston munu halda áfram að slást á sunnudag. Nordic Photos/Getty Images

Gerðar hafa verið breytingar á dagskrá Stöðvar 2 Sport um helgina. Það verður engin beint útsending í nótt en sjötti leikur Houston og Lakers sem fram fór í nótt verður endursýndur klukkan eitt yfir miðnætti.

Á sunnudaginn verður aftur á móti oddaleikur liðanna sýndur í beinni útsendingu en ekki á Stöð 2 Sport heldur á Sport 3.

Hann er þess utan á kjörtíma fyrir íslenska áhorfendur eða klukkan 19.30.

Sama kvöld er síðan oddaleikur Orlando og Boston sýndur beint á NBA TV.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×