Körfubolti

Philadelphia 76ers tryggði sig inn í úrslitakeppnina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andre Iguodala var flottur hjá Philadelphia í kvöld.
Andre Iguodala var flottur hjá Philadelphia í kvöld. Mynd/GettyImages

Philadelphia 76ers tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með 95-90 sigri á Detroit Pistons í kvöld. Detroit tapaði þriðja leiknum í röð og er ekki enn öruggt inn í úrslitakeppnina.

Andre Iguodala skoraði 31 stig fyrir Philadelphia og Andre Miller var með þrennu, skoraði 21 stig, gaf 12 stoðsendingar og tók 10 fráköst. Rodney Stuckey skoraði 23 stig fyrir Detroit.

Ben Gordon skoraði 12 af 18 stigum í fjórða leikhluta í 103-94 sigri Chicago Bulls á New Jersey Nets en Bulls-liðið hefur nú unnið 8 af síðustu 11 leikjum sínum. John Salmons skoraði 17 stig fyrir Chicago en Brook Lopez var atkvæðamestur hjá New Jersey með 20 stig og 10 fráköst.

Toronto Raptors á ekki lengur möguleika á að komast í úrslitakeppnina þrátt 102-95 sigur á New York Knicks. Andrea Bargnani var með 23 stig og Chris Bosh skoraði 17 stig og tók 13 fráköst í sjötta sigri Toronto í röð en endasprettur liðsins kom bara of seint.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×