Körfubolti

Rondo gæti enn samið við Celtics

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rajon Rondo.
Rajon Rondo.

Samningaviðræður leikstjórnandans Rajon Rondo og Boston Celtics hafa ekki gengið vel og um helgina var talið að þær hefðu farið út um þúfur.

Það reyndist ekki vera rétt því menn hafa sest aftur að samningaborðinu og vonast til þess að ná lendingu fyrir laugardag.

Ef samningar takast ekki fyrir laugardag verður Rondo frjálst að ræða við önnur félög næsta sumar. Celtics getur þá jafnað öll tilboð sem hann fær.

Samkvæmt heimildum vilja umboðsmenn Rondo að hann verði meðal fimm launahæstu leikstjórnenda deildarinnar en forráðamenn Boston eru ekki til í að gera svo vel við hann.

Sjálfur hefur Rondo ekkert viljað ræða málið við fjölmiðla.

NBA-deildin hófst í nótt með góðum sigri Boston á Cleveland.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×