Körfubolti

Denver í úrslit Vesturdeildar í fyrsta sinn síðan 1985

Carmelo Anthony þakkar Rick Carlisle þjálfara Dallas fyrir leikinn
Carmelo Anthony þakkar Rick Carlisle þjálfara Dallas fyrir leikinn AP

Denver Nuggets varð í nótt annað liðið til að tryggja sér sæti í þriðju umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar þegar það vann 124-110 sigur á Dallas í fimmta leik liðanna á heimavelli sínum.

Denver kláraði því einvígið 4-1 líkt og gegn New Orleans í fyrstu umferðinni og mætir annað hvort LA Lakers eða Houston Rockets í úrslitum Vesturdeildarinnar.

Carmelo Anthony skoraði 30 stig fyrir Denver í nótt og Chauncey Billups 28, en Dirk Nowitzki fór fyrir Dallas með 32 stigum, 10 fráköstum og 7 stoðsendingum.

Denver var með 64% skotnýtingu í fyrri hálfleiknum og var yfir 69-55 þegar flautað var til hlés. Dallas náði að klóra í bakkann í þeim síðari en Denver kláraði dæmið endanlega um miðjan fjórða leikhluta.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×