Tónlist

Útgáfudegi flýtt um mánuð

Söngkonan Karen O og Nick Zinner úr Yeah Yeah Yeahs.nordicphotos/getty
Söngkonan Karen O og Nick Zinner úr Yeah Yeah Yeahs.nordicphotos/getty

Rokktríóið Yeah Yeah Yeahs hefur ákveðið að flýta útgáfudegi sinnar þriðju plötu, It"s Blitz!, um rúman mánuð. Ástæðan kemur fáum á óvart, eða leki á netinu, sem virðist nánast ómögulegt að koma í veg fyrir.

Platan verður gefin út stafrænt 9. og 10. mars og á geisladiski 31. mars og 6. apríl. Upphaflega átti platan að koma út um miðjan apríl en þau áform eru farin út um þúfur. „Leyndarmálið hefur verið opinberað eftir að It"s Blitz! slapp úr klónum á okkur og út í hinn stóra og vonda heim. Hvers vegna ættu sumir að fá að hlusta á plötuna en aðrir ekki?" sagði á heimasíðu sveitarinnar. „YYY hefur verið að springa úr æsingi yfir því að gefa plötuna út. Svona leki er leiðinlegur en við ráðum ekki við hann."

Til að fylgja henni eftir ætlar hljómsveitin í umfangsmikla tónleikaferð um Evrópu í kjölfar þátttöku sinnar í Coachella-hátíðinni 19. apríl. Fyrstu tónleikarnir verða í Manchester 22. apríl og er þegar uppselt á þá. Þrjú ár eru liðin síðan önnur plata Yeah Yeah Yeahs kom út, Show Your Bones.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.