Körfubolti

Boston vann oddaleikinn á móti Chicago í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Pierce fagnar hér sigri Boston í nótt.
Paul Pierce fagnar hér sigri Boston í nótt. Mynd/GettyImages

Boston Celtics vann Chicago Bulls 109-99 í oddaleik í Boston í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Meistarar Boston eru þar með komnir áfram í undanúrslit Austurdeildarinnar þar sem þeir mætir Orlando Magic. Fyrsti leikur liðanna er strax á mánudagskvöldið.

Frábær endakafli Boston í fyrri hálfleik kom þeim 14 stigum yfir í hálfleik og Chicago liðið náði aldrei að brúa það bil þótt að það hafi komið muninum niður í þrjú stig í lokin. Boston hitti síðan úr öllum ellefu vítaskotum sínum síðustu tvær mínútur leiksins og landaði langþráðum sigri.

Ray Allen var með 23 stig fyrir Boston og Paul Pierce skoraði 20 stig. Það voru fleiri að standa sig hjá Boston, Kendrick Perkins var með 14 stig og 13 fráköst, Rajon Rondo gaf 11 stoðsendingar og Eddie House hitti úr öllum fimm skotum sínum og skoraði sextán stig. Þá var Glen Davis með 15 stig.

„Ég sé ekki frábæra seríu, ég sé erfiða seríu," sagði Doc Rivers, þjálfari Boston eftir leikinn. "Það eina sem skiptir þjálfarann máli er að vinna einvígið," bætti Rivers við.

Ben Gordon var með 33 stig fyrir Bulls-liðið þar af 17 þeirra í fyrsta leikhluta sem Chicago vann 27-23 eftir að hafa komist mest níu stigum yfir. Kirk Hinrich skoraði 14 af 16 stigum sínum í fjórða leikhluta.

Nýliðinn Derrick Rose skoraði 18 stig fyrir Chicago en hann var "aðeins" með 12,87 stig og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í fjórum tapleikjum Chicago í einvíginu.

„Þetta var langt og lýjandi einvígi. Þetta var ein erfiðasta andlega sería í úrslitakeppni sem ég hef tekið þátt í. Sem betur fer höfðum við reynslu af svona baráttueinvígum og tókst að klára þetta. Við erum enn meistarar þangað til að einhver slær okkur út," sagði Paul Pierce eftir leikinn.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×