Körfubolti

NBA í nótt: San Antonio náði sér í titil

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tekið á því í leik San Antonio og New Orleans í nótt.
Tekið á því í leik San Antonio og New Orleans í nótt. Nordic Photos / Getty Images

Lokakeppnisdagur deildakeppninnar í NBA-deildinni fór fram í nótt og er því ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um helgina.

Alls voru fjórtán leikir í deildinni í nótt og af nægu að taka. Einna athyglisverðast var að San Antonio tókst að hrifsa meistaratitilinn í suðvesturriðli Vesturdeildarinnar af Houston með góðum sigri á New Orleans, 105-98.

Vesturdeildin

Dallas - Houston 95-84

Portland - Denver 104-76

San Antonio - New Orleans 105-98

Minnesota - Sacramento 90-97

LA Clippers - Oklahoma City 85-126

Phoenix - Goilden State 117-113

San Antonio var fimm stigum undir þegar tæpar 50 sekúndur voru til leiksloka. Michael Finley setti niður þrist um leið og leiktíminn rann út og tryggði þar með sínum mönnum framlengingu.

Í henni vann svo San Antonio öruggan sjö stiga sigur sem fyrr segir. Þar sem Houston tapaði fyrir Dallas á sama tíma var ljóst að fyrrnefnda liðið lét titilinn sér úr rennum greipa og það sem meira er - heimavallarréttinn í úrslitakeppninni.

Tim Duncan átti stórleik með San Antonio og skoraði 20 stig og tók nítján fráköst. Hann skoraði sex stig í framlengingunni og tók þar að auki sex fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Tony Parker átti sem fyrr góðan leik og skoraði 29 stig.

San Antonio náði í þriðja sæti Austurdeildarinnar en Houston féll úr því þriðja í það fimmta með sínu tapi. Portland vann góðan sigur á Denver og færðist þar með upp í fjórða sætið.

Með sigri hefði Houston náð öðru sæti Austurdeildarinnar þar sem liðið er með betri árangur en Denver í innbyrðisviðureignum liðanna í vetur. Tapið í nótt reyndist því liðinu nokkuð dýrkeypt.

Með sigri Dallas færðist liðið upp í sjötta sæti deildarinnar á kostnað New Orleans.

Fyrsta umferð úrslitakeppninnar:

LA Lakers - Utah

Denver - New Orleans

San Antonio - Dallas

Portland - Houston

Austurdeildin



Boston - Washington 115-107

Chicago - Toronto 98-109

Cleveland - Philadelphia 110-111

Indiana - Milwaukee 115-108

Memphis - Atlanta 98-90

Miami - Detroit 102-96

New York - New Jersey 102-73

Orlando - Charlotte 98-73

Cleveland hefði með sigri á Philadelphia í nótt jafnað 24 ára gamalt met Boston Celtics fyrir flesta sigra á heimavelli á einu og sama tímabilinu. En ákveðið var að hvíla þá LeBron James og Mo Williams.

Philadelphia hafði að einhverju að keppa í leiknum og lagði því allt í sölurnar. Andre Miller skoraði 30 stig og Andre Iguodala 24 í framlengdum leik og sigri Philadelphia, 111-110.

Þar sem að Chicago tapaði fyrir Toronto á sama tíma hafði liðið sætaskipti við Philadelphia. Chicago féll í sjöunda sæti deildarinnar og fær það erfiða verkefni að mæta Boston í fyrstu umferðinni.

Annað lá fyrir í Vesturdeildinni fyrir leiki næturinnar hvað úrslitakeppnina varðaði.

Fyrsta umferð úrslitakeppninnar:

Cleveland - Detroit

Boston - Chicago

Orlando - Philadelphia

Atlanta - Miami





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×