Körfubolti

LeBron óttaðist að vera með krabbamein

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron James.
LeBron James.

Körfuboltagoðið LeBron James greindi frá því í viðtali við dagblað í Cleveland að hann hefði óttast í byrjun janúar að vera með krabbamein.

Læknar fundu æxli í kjálka James og þurfti að taka sýni til að skera úr um hvort hann væri með krabbamein eður ei.

James segir að biðin eftir niðurstöðunum hafi verið erfið fyrir sig sem og fjölskyldu sína.

Að lokum leiddi niðurstaða í ljós að æxlið var góðkynja. James lét fjarlægja það um leið og síðasta körfuboltatímabili lauk.

Hann bætti við að svefninn sem hann hefði fengið í kjölfarið á spítalanum hefði verið einn sá besti á hans ævi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×