Körfubolti

NBA í nótt: Nowitzky með 29 stig í einum leikhluta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dirk Nowitzky fór mikinn í nótt.
Dirk Nowitzky fór mikinn í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Dirk Nowitzky, leikmaður Dallas, fór mikinn í nótt er hann setti niður 29 stig í fjórða leikhluta og tryggði sínum mönnum sigur, 96-85, á Utah á heimavelli í gær.

Þetta er einnig nýtt félagsmet hjá Dallas en það gamla átti Mark Aguirre er hann skoraði 24 stig í einum leikhluta í leik gegn Denver árið 1984.

Dallas var sextán stigum undir, 72-56, í upphafi fjórða leikhluta en stuttu síðar komst liðið á 19-6 sprett og náði að jafna metin þegar tæpar þrjár mínútur voru til leiksloka. Nowitzky fór mikinn á þessum kafla og raðaði niður körfunum. Alls hitti hann úr sjö af átta skotum sínum utan af velli og setti niður öll fjórtán vítaköstin sín.

Wilt Chamberlain á metið fyrir flest stig í fjórða leikhluta. Hann skoraði 31 stig er hann skoraði 100 stig í leik með Philadelphia Warriors gegn New York Knicks árið 1962.

Þeir George Gervin og Carmelo Anthony deila metinu fyrir flest stig í einum leikhluta eða 33 talsins. Gervin setti metið árið 1978 og Anthony jafnaði það í desember í fyrra.

LA Lakers vann Oklahoma City, 101-98, í framlengdum leik. Kobe Bryant skoraði 31 stig í leiknum og sigurkörfuna í framlengingunni.

Phoenix vann Miami, 104-96. Steve Nash var með 30 stig og átta stoðsendingar en þetta var fyrsta tap Miami í haust. Phoenix er hins vegar enn ósigrað.

Atlanta vann Portland, 97-91, þar sem Jamal Crawford skoraði 27 stig þó svo að hann hefði ekki verið í byrjunarliðinu. LaMarcus Aldridge var stigahæstur hjá Portland með 20 stig og fjórtán fráköst.

Denver vann Indiana, 111-93. Carmelo Anthony skoraði 25 stig og Chauncey Billups bætti við 24. Denver hefur nú unnið fyrstu fjóra leiki sína í deildinni og hefur ekki byrjað betur í 24 ár.

Boston vann Philadelphia, 105-74. Paul Pierce var með 24 stig, Rasheed Wallace var með 20 en þeir Kevin Garnett og Ray Allen voru samanlagt aðeins með átta stig í leiknum. Boston hefur unnið alla fimm fyrstu leiki sína.

Cleveland vann Washington, 102-90. LeBron James skoraði 27 stig og Shaquille O'Neal 21.

Detroit vann Orlando, 85-80, þar sem Ben Gordon skoraði 23 stig og Rodney Stuckey bætti við 20. Þetta var fyrsta tap Orlando á tímabilinu. Tayshaun Prince missti af leiknum vegna bakmeiðsla en hann hafði leikið 496 leiki í röð þar til í gær.

Chicago vann Milwaukee, 83-81. Luol Deng var með 24 stig og 20 fráköst.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×