Körfubolti

NBA: Cleveland komið í 3-0 gegn Pistons

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron var sterkur í nótt.
LeBron var sterkur í nótt. Nordic Photos/Getty Images

Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Cleveland lagði Detroit, 79-68. Philadelphia vann Orlando, 96-94, og Houston vann Portland, 86-83.

LeBron James skoraði 11 af 25 stigum sínum gegn Detroit í fjórða leikhluta. LeBron var mikið að kvarta yfir vondri meðferð sem hann fékk hjá vörn Pistons en um leið og hann hætti að væla og fór að spila varð hann óstöðvandi.

Cavaliers komið í 3-0 og svo gott sem í næstu umferð.

Philadelphia er að koma skemmtilega á óvart í úrslitakeppninni og komst í 2-1 gegn Orlando með sigrinum í nótt. Thaddeus Young skoraði sigurkörfuna tveim sekúndum fyrir leikslok.

Houston er svo komið í 2-1 gegn Portland eftir sigur í nótt. Yao Ming hafði sig afar hægan en Houston tókst einnig að skrúfa fyrir Brandon Roy og það var meira en Portland þoldi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×