Körfubolti

Leon Powe úr leik hjá Boston

Leon Powe
Leon Powe Nordic Photos/Getty Images

Meistarar Boston Celtics í NBA deildinni hafa orðið fyrir enn einu áfallinu. Kraftframherjinn Leon Powe er með slitin krossbönd í vinstra hné og spilar ekki meira með liðinu í úrslitakeppninni.

Boston er þegar án kraftframherjans Kevin Garnett og því er ljóst að framlína liðsins er enn að þynnast.

Powe meiddist í snemma í öðrum leikhluta í annari viðureign Boston og Chicago í gær, sem var líklega besti leikur úrslitakeppninnar til þessa.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×