Fótbolti

Fletcher sá fyrsti síðan 2003

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fletcher fagnar marki í leik með Manchester United.
Fletcher fagnar marki í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Darren Fletcher verður fyrsti leikmaðurinn sem tekur út leikbann í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu síðan að Pavel Nedved gerði það árið 2003.

Fletcher fékk að líta umdeilt rautt spjald fyrir að brjóta á Cesc Fabregas í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. United vann leikinn, 3-1, og komst þannig áfram í úrslitin.

Þess má þó geta að þeir Roy Keane og Paul Scholes voru báðir í banni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 1999 er United vann ævintýralegan sigur á Bayern München í úrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×