Körfubolti

LeBron James er bestur í ár

LeBron James og Kobe Bryant verða í beinni á Stöð 2 Sport þann 8. febrúar
LeBron James og Kobe Bryant verða í beinni á Stöð 2 Sport þann 8. febrúar NordicPhotos/GettyImages

LeBron James er verðmætasti leikmaður ársins í NBA deildinni það sem af er leiktíðinni. Þetta sagði núverandi handhafi titilsins, Kobe Bryant, í samtali við LA Times um helgina.

"Það er LeBron - og hættið svo að spyrja mig svona spurninga," sagði Bryant þegar hann var spurður hver væri besti leikmaður deildarinnar nú þegar deildakeppnin er um það bil hálfnuð.

"Ég er mikill aðdáandi James og hann er í miklum metum hjá mér. Ég sá vinnusemi hans og hæfileika í nærmynd á Ólympíuleikunum í sumar. Hann er frábær leikmaður," sagði Bryant um Cleveland-manninn öfluga.

Viðureigna þeirra Bryant og James er jafnan beðið með mikilli eftirvæntingu, en Cleveland og Los Angeles Lakers eigast aðeins tvisvar við á ári.

Fyrri viðureign liðanna er í Los Angeles í nótt og næsta einvígi þessara stórkostlegu leikmanna verður sunnudaginn 8. febrúar í Cleveland og verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×