Körfubolti

Brand gæti snúið aftur með Sixers í nótt

80 milljón dollara maðurinn Elton Brand gæti snúið aftur úr meiðslum í kvöld, en hann var að skila 16 stigum og 10 fráköstum í leik þegar hann meiddist
80 milljón dollara maðurinn Elton Brand gæti snúið aftur úr meiðslum í kvöld, en hann var að skila 16 stigum og 10 fráköstum í leik þegar hann meiddist Nordic Photos / Getty Images

Ekki er loku fyrir það skotið að framherjinn Elton Brand spili í nótt sinn fyrsta leik með Philadelphia 76ers síðan 17. desember þegar liðið tekur á móti San Antonio Spurs í NBA deildinni.

Leikur liðanna verður sýndur beint á Stöð 2 Sport á miðnætti og þar munu heimamenn í Philadelphia leitast við að vinna sinn sjötta leik í röð.

San Antonio hefur unnið átta af síðustu tíu leikjum sínum og vann síðast dramatískan sigur á LA Lakers þar sem öskubuskuævintýrið Roger Mason tryggði liðinu sigurinn í blálokin.

San Antonio hefur náð sér prýðilega á strik eftir að meiðsli hrjáðu þá Tony Parker og Manu Ginobili framan af vetri. Liðið hefur unnið 25 leiki og tapað aðeins 12 og er í þriðja sæti Vesturdeildar.

Philadelphia byrjaði illa í vetur og kostaði það Mo Cheeks þjálfara starfið, en útlit er fyrir að liðið sé nú eitthvað að hressast eins og fimm leikja sigurgangan gefur til kynna.

Philadelphia hefur unnið 18 leiki og tapað 20 og situr sem stendur í áttunda sæti Austurdeildarinnar, sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Liðið fékk kraftframherjann sterka Elton Brand til liðs við sig frá LA Clippers í sumar og skrifaði hann undir 80 milljón dollara samning við félagið.

Gríðarlegar væntingar voru í kjölfarið bundnar við 76ers í vetur eftir óvæntan sprett liðsins í úrslitakeppninni í fyrra, en byrjunin var þó ekki eins góð og til stóð.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×