Körfubolti

Shaq ætlar að vinna hring fyrir LeBron

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Shquille O´Neal.
Shquille O´Neal. Nordic Photos/AFP

Shaquille O´Neal og egóið hans er mætt til Cleveland. Shaq var ekki að spara stóru orðin frekar en fyrri daginn þegar hann var lentur í Cleveland.

„Mitt markmið hér er mjög einfalt. Að vinna hring fyrir Kónginn," sagði Shaq og meinti að hann ætlaði að afgreiða eins og einn meistarahring fyrir LeBron James.

Shaq hélt mikinn blaðamannafund í hálftíma þar sem hann fór á kostum og sýndi íbúum Cleveland hvernig sirkusinn verður í það minnsta næsta árið.

„Ég á mikið eftir. Það eru ekki nema fjórir eða fimm góðir miðherjar í deildinni og ég er þar á meðal," sagði Shaq hógvær sem fyrr.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×