Tónlist

Tíunda sólóplatan

Gítarleikari Red Hot Chili Peppers gefur út sína tíundu sólóplötu á næstunni.
Gítarleikari Red Hot Chili Peppers gefur út sína tíundu sólóplötu á næstunni.

Gítarleikari Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, gefur út sína tíundu sólóplötu 26. janúar. Platan nefnist The Empyrean og koma þar við sögu Flea, bassaleikari Red Hot, og Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths.

„Sköpun sannrar tónlistar er ávallt í forgangi hjá mér," sagði Frusciante. „Stundum verð ég mjög tæknilegur í nálgun minni en síðan reyni ég líka að fylgja í fótspor guða tónlistarinnar. Listamaður verður alltaf að svara því hvaða andar fylgja honum í sköpun sinni. Það er allt í lagi ef þeir eiga í átökum innbyrðis."

Bætti hann því við að engin áform væru uppi hjá Red Hot Chili Peppers um að taka upp nýja plötu á næstunni. Síðasta plata sveitarinnar, hin tvöfalda Stadium Arcadium, kom út árið 2006.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.