Tónlist

Dönsku rokkararnir klikkuðu hvergi

D-A-D. Sveitin var óborganlega fyndin og þrælþétt á tónleikum á Nasa um helgina.
D-A-D. Sveitin var óborganlega fyndin og þrælþétt á tónleikum á Nasa um helgina. Fréttablaðið/Anton
Dönsku rokkararnir í D-A-D voru trúir sjálfum sér og héldu kraftmikla og vel heppnaða tónleika á Nasa á laugardagskvöld síðasta. Einkum fór bassaleikarinn á kostum á sínum tveggja strengja bassa, ber að ofan uppi á hátalarastæðum og bassatrommu, í níðþröngum buxum með áletrunina „nasty“ á rassinum – sem hann var ekki að fela fyrir hljómleikagestum. Upp í hugann kom óhjákvæmilega „mockumentary“, myndin um Spinal Tap, og gestir voru vel með á nótunum.

Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð, hafði milligöngu um tónleikahaldið í samstarfi við dönsku samtökin Because We Care sem hefur það að markmiði að koma bágstöddum Íslendingum í Danmörku til hjálpar. Grímur er ánægður með hvernig til tókst. Fullt hús var og áhorfendur skemmtu sér hið besta.

„Þeir koma hingað og fá enga peninga fyrir það. Í sjálfu sér skiptir söfnunin sem slík, hvað varðar tónleikana, ekki meginmáli í krónum og aurum talið,” segir Grímur og vísar til þess að íslenska krónan vegi ekki mikið úti í Danmörku.

Hátt í fimm hundruð miðar seldust og reikningsdæmið lítur þannig út að eftir standa um 30 þúsund danskar. „Það sem skiptir máli í þessu sambandi er að TV2 fylgdi tónleikunum vel eftir og binda má vonir við að það leiði til þess að söfnun í Danmörku muni ganga enn betur,“ segir Grímur.

Samtökin Because We Care hafa nú þegar safnað hátt í tíu milljónum íslenskra króna sem hafa runnið til íslenskra námsmanna og ellilífeyrisþega sem búsettir eru í Danmörku. D-A-D vinnur nú að myndbandi sem tekið er upp hér á landi og er kvikmyndafyrirtækið True North þeim innanhandar með það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.