Körfubolti

Ráðist á NBA-dómara í fangelsi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Donaghy hér með Kobe Bryant.
Donaghy hér með Kobe Bryant. Nordic Photos/Getty Images

Fyrrum NBA-dómarinn Tim Donaghy á ekki sjö dagana sæla í fangelsi í Flórída. Þar var ráðist á dómarann og honum hótað lífláti.

Donaghy var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi eftir að í ljós kom að hann hafði þegið þúsundir dollara fyrir að gefa upplýsingar um leiki í NBA-deildinni og þar á meðal leiki sem hann var að dæma sjálfur.

Fanginn sem réðst á Donaghy lamdi hann í hnéð með kylfu. Einnig var honum hótað lífláti af fanganum sem réðst á hann en sá er talinn tengjast mafíunni í New York.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×