Körfubolti

Fara Dwyane Wade og félagar í sumarfrí?

Dwyane Wade er lurkum laminn eftir átökin við leikmenn Atlanta
Dwyane Wade er lurkum laminn eftir átökin við leikmenn Atlanta AP

Sjötti leikur Miami Heat og Atlanta Hawks í úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan tólf á miðnætti.

Atlanta getur með sigri tryggt sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar og hefur yfir 3-2 í einvíginu.

Mikill hiti hefur verið í mönnum í þessu einvígi, leikmenn hafa ögrað hver öðrum með ýmsum hætti og í síðasta leik fengu nokkrir að detta harkalega í gólfið - þar á meðal stórstjarnan Dwyane Wade hjá Miami - og oft hefur legið við handalögmálum.

Atlanta hefur unnið síðustu tvo leiki liðanna nokkuð örugglega og því verða heimamenn að taka á öllu sínu í kvöld ef þeir ætla ekki í sumarfrí.

Atlanta er án tveggja byrjunarliðsmanna í kvöld. Framherjinn Marvin Williams hefur ekki komið við sögu í seríunni vegna meiðsla og þá getur miðherjinn Al Horford ekki spilað í kvöld vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í fimmta leiknum í fyrrakvöld.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×