Körfubolti

Stern vill betri afsökunarbeiðni frá Cuban

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cuban er alltaf líflegur á vellinum.
Cuban er alltaf líflegur á vellinum. Nordic Photos/Getty Images

David Stern, yfirmaður NBA-deildarinnar, segist ekki hafa verið sáttur við afsökunarbeiðni Marks Cuban, eiganda Dallas Mavericks, til handa móður Kenyon Martin.

Cuban kaus að biðjast afsökunar í gegnum bloggsíðu sína en Stern vill meira.

„Þetta var tilraun til þess að biðjast afsökunar. Mér fannst hann eiga að gera betur og ég hringdi í Mark til þess að láta hann vita af því," sagði Stern sem vill að Cuban hringi í eða hitti konuna.

Hann ætlar samt ekki að refsa Cuban frekar þó svo hann geri ekki meira í málinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×