Körfubolti

Ekki líklegt að NBA leggi treyju númer 23

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Eins og Vísir greindi frá á föstudaginn þá stendur LeBron James fyrir átaki þar sem hann hvetur alla leikmenn deildarinnar með númerið 23 á bakinu til þess að leggja númerinu af virðingu við Michael Jordan.

Sjálfur spilar James í treyju númer 23 og hann er tilbúinn að spila í treyju númer 6 á næsta ári.

Það er ekki án fordæma að deildir leggi ákveðnum númerum. Hafnaboltinn hætti með treyju númer 42 af virðingu við Jackie Robinson og NHL-deildin lagði treyju númer 99 vegna Wayne Gretzky.

Talsmaður NBA-deildarinnar segir það vera ákvörðun félaganna en ekki deildarinnar að leggja ákveðnum númerum.

Alls leika 13 leikmenn í NBA-deildinni með númerið 23.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×