Körfubolti

NBA í nótt: Orlando og Miami jöfnuðu metin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Josh Smith reynir að verjast Dwyane Wade í leiknum í nótt.
Josh Smith reynir að verjast Dwyane Wade í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Orlando og Miami jöfnuðu metin í sínum rimmum en Denver komst í 2-0 gegn New Orleans.

Orlando vann Philadelphia, 96-87, þar sem nýliðinn Courtney Lee fór mikinn og skoraði 24 stig. Hedo Turkoglu bætti við sextán stigum og Dwight Howard ellefu og tíu fráköstum.

Howard þurfti að fara af velli með sex villur þegar þrjár mínútur voru til leiksloka og það mátti litlu muna að átján stiga forysta Orlando yrði að engu á þessum kafla. En heimamenn náðu að halda forystunni út leikinn.

Andre Miller var með 30 stig fyrir Philadelphia og Andre Iguodala 21 stig, þar af 20 í síðari hálfleik.

Miami vann Atlanta, 108-93, á útivelli og jafnaði þar með metin í rimmu liðanna. Miami átti skelfilegan leik í fyrsta leik liðanna og skoraði ekki nema 64 stig en það var allt annað að sjá til liðsins í nótt.

Dwyane Wade fór á kostum og skoraði 33 stig, þar af þrettán stig í röð í lok fyrri hálfleiks.

Atlanta náði að minnka muninn tvívegis í fimm stig í fjórða leikhluta en nær komst liðið ekki. Þetta var slæmt tap fyrir liðið enda dugir nú Miami að vinna heimaleiki sína til að komast í næstu umferð úrslitakeppninnar. Atlanta vann engan leik í úrslitakeppninni á útivelli á síðustu leiktíð.

Denver vann New Orleans, 108-93. Chauncey Billups fór mikinn í liði Denver og skoraði 31 stig.

Hann hefur farið á kostum í þessum tveimur leikjum liðanna í úrslitakeppninni. Alls hefur hann skorað 67 stig í leikjunum tveimur, hitt úr tólf af fimmtán þriggja stiga skotum og öllum nítján vítaköstum sínum. Þar að auki hefur hann gefið tólf stoðsendingar og ekki tapað einum einasta bolta.

Sigur Denver var mjög öruggur en næstu leikir fara fram á heimavelli New Orleans. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1985 að Denver kemst í 2-0 forystu í einvígi í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

David West var með 21 stig fyrir New Orleans, Peja Stojakovic sautján og Chris Paul fjórtán stig og þrettán stoðsendingar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×