Körfubolti

Jón Arnór aftur til Ítalíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með KR í vetur.
Jón Arnór Stefánsson í leik með KR í vetur. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson hefur gengið frá samningi við ítalska úrvalsdeildarliðið Benetton Treviso sem gildir í einn mánuð.

Þetta kemur fram á heimasíðu KR og segir Jón Arnór þar að hann muni halda utan strax á mánudaginn.

Jón Arnór lék sem kunnugt er með Lottomatica Roma og Napoli á Ítalíu og er þetta því þriðja liðið sem hann leikur með þar í landi.

Jón Arnór mun spila með liðinu í síðustu tveimur deildarleikjunum og svo í úrslitakeppninni. Liðið er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar og er ágætur möguleiki á því að það mæti einmitt Lottomatica Roma í úrslitakeppninni.

Treviso Benetton varð síðast Ítalíumeistari árið 2006 og bikarmeistari árið 2007.

Jón Arnór varð Íslandsmeistari með KR nú í vetur og var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×