Körfubolti

Shaq óskar Kobe til hamingju

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Shaq og Kobe í baráttunni.
Shaq og Kobe í baráttunni. Nordic Photos/Getty Images

Það tók lengri tíma en margir áttu von á en Kobe Bryant hefur loksins stigið út úr hinum stóra skugga Shaquille O´Neal.

Kobe vann sinn fjórða titil síðustu nótt og þann fyrsta án Shaq. Telja margir að hann hafi þar með áunnið sér rétt til þess að verða kallaður besti körfuboltamaður heims síðan Jordan hengdi upp skóna.

Shaq og Kobe hafa aldrei verið nánir vinir og það vakti nokkra athygli þegar Shaq lýsti því yfir á Twitter-síðunni sinni fyrir úrslitaeinvígið að hann óskaði þess að Kobe myndi vinna.

Shaq heldur áfram að nota Twitter því hann óskaði Kobe til hamingju í gegnum Twitter-síðuna í dag.

„Til hamingju, Kobe. Þú áttir þetta skilið. Þú spilaðir frábærlega. Njóttu þess maður, njóttu þess," sagði Shaq.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×