Körfubolti

Orlando í lokaúrslitin - sló Cleveland út með stæl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwight Howard fagnar einni af fjölmörgum troðslum sínum í nótt.
Dwight Howard fagnar einni af fjölmörgum troðslum sínum í nótt. Mynd/GettyImages

Orlando Magic tryggði sér sæti í lokaúrslitum NBA-deildarinnar á móti Los Angeles Lakers með auðveldum þrettán stiga sigri á Cleveland, 103-90, í úrslitum Austurdeildarinnar í nótt. Orlando vann einvígið 4-2. Dwight Howard átti frábæran leik og var gjörsamlega óstöðvandi inn í teig.

Sigur Orlando var aldrei í hættu eftir frábæran annan leikhluta þar sem liðið hélt LeBron James meðal annars stigalausum. Orlando vann leikhlutann 28-15 og var 18 stigum yfir í hálfleik,58-40. Cleveland átti góðan sprett í upphafi seinni hálfleiks en Orlando var fljótt að ná aftur tökum á leiknum og vann að lokum auðveldan sigur.

Dwight Howard átti stórleik og stóru menn Cleveland réðu ekkert við hann í teig. Howard endaði leikinn með 40 stig og 14 fráköst en hann hitti úr 14 af 21 skoti sínum í leiknum. Þetta var nýtt persónulegt met hjá Howard í úrslitakeppni.

Það voru fleiri að spila vel í jöfnu og samheldnu liði Orlando. Rashard Lewis skoraði 18 stig og Hedo Turkoglu var með 10 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar.

Frakkinn Mickael Pietrus hélt líka áfram að gera Cleveland lífið leitt á báðum endum vallarins, spilaði góða vörn á LeBron og setti síðan niður hvert þriggja stiga skotið á fætur öðru. Pietrus endaði leikinn með 14 stig.

LeBron James virkaði þungur og þreytulegur en endaði leikinn engu að síður með 25 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. James komst lítið áleiðis inn í teig, þurfti að hafa mikið fyrir öllu sínu og endaði með því að klikka á 12 af 20 skotum sínum.

Bakvarðar-tvíeykið Delonte West og Mo Williams ollu vonbrigðum hjá Cleveland en náðu þó að bjarga tölfræðinni með sprettum í seinni hálfleik. Williams skoraði 17 stig og gaf 5 stoðsendingar og West var með 22 stig.

Mestu vonbrigðin voru Litháinn Zydrunas Ilgauskas sem lét ekki bara Howard fara illa með sig í vörninni heldur skoraði aðeins 2 stig sjálfur.

Fyrsti leikur Los Angeles Lakers og Orlando Magic í lokaúrslitum NBA-deildarinnar fer fram í Los Angeles aðfaranótt föstudagsins. Fyrstu tveir leikirnir fara fram í LA en næstu þrír á eftir í Orlando.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×