Körfubolti

Iguodala tryggði Philadelphia sigur í Orlando

Andre Iguodala fagnar sigurkörfu sinni gegn Orlando í gærkvöldi
Andre Iguodala fagnar sigurkörfu sinni gegn Orlando í gærkvöldi AP

Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í gærkvöldi og í nótt. Aðeins einn þessara leikja var í raun spennandi en það var viðureign Orlando og Philadelphia í Flórída.

Philadelphia lenti mest 18 stigum undir á útivelli í leiknum en náði að rífa sig upp og vinna leikinn með sigurkörfu Andre Iguodala þegar um tvær sekúndur voru eftir af leiknum.

Orlando var með þriðja besta árangurinn í Austurdeildinni í vetur en Philadelphia sjötta besta.

Iguodala var besti maður Philadelphia í leiknum og skoraði 20 stig, gaf 8 stoðsendingar og hirti 8 fráköst, Lou Williams skoraði 18 stig og Andre Miller var með 15 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar.

Hjá Orlando var Dwight Howard að venju atkvæðamestur með 31 stig og 16 fráköst og Courtney Lee var með 18 stig.

Billups frábær

Chauncey Billups var allt í öllu þegar Denver vann stórsigur á New Orleans Hornets 113-84 á heimavelli. Billups hitti úr 8 af 9 þriggja stiga skotum sínum í leiknum, skoraði 36 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Denver.

Leikurinn var jafn framan af en Denver stakk af í síðari hálfleiknum. Chris Paul skoraði 21 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir New Orleans.

Þetta var næst stærsti sigur Denver í úrslitakeppni í sögu félagsins, en leikurinn í gær markaði líka fyrsta skiptið í 21 ár sem Denver er með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Atlanta tók Miami í kennslustund

Flestir reikna með því að einvígi Atlanta Hawks og Miami Heat verði eitt það jafnasta í fyrstu umferðinni, en fyrsti leikur liðanna í Atlanta var alls ekki jafn. Atlanta sigraði 90-64 og færði Miami einn versta skell í sögu félagsins í úrslitakeppni.

Josh Smith fór fyrir liði Atlanta með 23 stigum, 10 fráköstum og mörgun glæsilegum troðslum yfir lánlaust Miami-liðið. Joe Johnson skoraði 15 stig og Al Horford 14.

Dwyane Wade skoraði 19 stig fyrir Miami og Michael Beasley 10, en enginn annar leikmaður Miami skoraði yfir 10 stig í leiknum. Miami skoraði aðeins 7 stig í fjórða leikhlutanum.

Þá vann LA Lakers sigur á Utah eins og við greindum frá í gærkvöld.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×