Körfubolti

Howard varnarmaður ársins

Dwight Howard
Dwight Howard Nordic Photos/Getty Images

Miðherjinn Dwight Howard hjá Orlando Magic hefur verið kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni eftir því sem fram kemur í Orlando Sentinel í dag.

Tilkynnt verður formlega um valið í kvöld en flestir hölluðust að því að Howard myndi hreppa þessa nafnbót í ár.

Howard er yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem fær þessi verðlaun, en hann varð 23 ára gamall í vetur. Hann var efstur í deildinni í fráköstum (13,8) og vörðum skotum (2,92) í deildarkeppninni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×