Körfubolti

Cleveland tapaði óvænt fyrir lélegasta liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gilbert Arenas var sáttur með að vinna besta lið NBA-deildarinnar í nótt.
Gilbert Arenas var sáttur með að vinna besta lið NBA-deildarinnar í nótt. Mynd/GettyImages

Cleveland Cavaliers tapaði óvænt fyrir Washington Wizards í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en Washington var með lélegasta árangurinn í Austurdeildinni fyrir leikinn. Cleveland var búið að vinna þrettán leiki í röð fyrir leikinn. það fóru þrír leikir fram í deildinni.

Washington Wizards vann Cleveland 109-101 en liðið var í fyrsta sinn með þá Gilbert Arenas, Caron Butler, Antawn Jamison og Brendan Haywood heila á tímabilinu. Arenas lék sinn annan leik eftir að hafa komið til baka eftir tvo hnéuppskurði og var með 11 stig og 10 stoðsendingar.

„Þetta gefur okkur mikið sjálfstraust fyrir næsta ár. Við vonum líka að þetta gefi fólki fyrirheit um hvernig þetta lið verður á næsta ári," sagði Ed Tapscott, starfandi þjálfari Washington en liðið hefur verið án lykilmanna í vetur.

LeBron James skoraði 22 af 31 stigi sínu í seinni hálfleik og var að auki með 9 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 tapaða bolta. „Við getum ekki látið einn tapleik draga okkur og spilla fyrir frábæru tímabili. Við tökum þetta tap inn á okkur af því að við þolum ekki að tapa en síðan er það bara næsti leikur," sagði James.

Denver Nuggets vann 114-104 sigur á Utah Jazz og hefur aldrei verið fljótari að ná 50 sigrum í sögu félagsins í NBA-deildinni. J.R. Smith skoraði átta þriggja stiga körfur og samtals 28 stig í leiknum. Carmelo Anthony var með 23 stig fyrir Denver en hjá Utah var C.J. Miles stigahæstur með 19 stig. Þetta var tíundi sigur Denver í síðustu ellefu leikjum.

Philadelphia 76ers vann Milwaukee Bucks, 105-95. Andre Iguodala skoraði 20 stig, Lou Williams var með 14 af 21 stigi sínu í seinni hálfleik og Andre Miller var með 18 stig og 11 stoðsendingar fyrir Philadelphia sem vann annan leikinn sinn í röð og komst upp fyrir Miami í fimmta sætið í Austurdeildinni. Ramon Sessions var með 18 stig og 10 stoðsendingar hjá Milwaukee.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×