Körfubolti

Morrison til LA Lakers

Adam Morrison hefur alls ekki fundið sig hjá Charlotte í vetur
Adam Morrison hefur alls ekki fundið sig hjá Charlotte í vetur AP

Los Angeles Lakers og Charlotte Bobcats gerðu með sér leikmannaskipti í NBA deildinni í kvöld. Lakers sendir framherjann Vladimir Radmanovic til Charlotte í skiptum fyrir Adam Morrison og Shannon Brown.

Radmanovich hefur ekki náð að festa sig í sessi undir stjórn Phil Jackson hjá Lakers og sömu sögu er að segja um Morrison undir stjórn Larry Brown hjá Charlotte.

Radmanovich er á sjöunda ári í deildinni og skilaði Lakers liðinu um sex stigum að meðaltali í leik. Hann hóf ferilinn hjá Seattle Supersonics.

Morrison var valinn númer þrjú í nýliðavalinu árið 2006. Hann hefur valdið vonbrigðum það sem af er í vetur eftir að hafa misst úr allt síðasta tímabil vegna meiðsla.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×