Körfubolti

Andrew Bynum húlahoppar með Playboy-kanínum (myndband)

Andrew Bynum
Andrew Bynum Nordic Photos / Getty Images

Um helgina birtust skemmtilegar myndir af miðherjanum Andrew Bynum hjá LA Lakers í netheimum þar sem hinn meiddi leikmaður var að gamna sér með léttklæddum stúlkum á Playboy-setrinu.

Bynum hefur átt við meiðsli að stríða síðustu vikur og stefnir á að ná að byrja að spila aftur þegar úrslitakeppnin hefst um miðjan þennan mánuð.

Phil Jackson, þjálfari Lakers, vill ekki gera of mikið úr þessari uppákomu, þó hann hafi ekki verið sérstaklega hrifinn af því að heyra að miðherjinn hefði borið eina af stúlkunum á herðum sér.

"Mér finnst fólk gera of mikið úr þessu og það er óþarfi. Þetta er ungur maður, hann er ekki einu sinni orðinn 22 ára gamall. Hann hefur verið frá keppni í einn og hálfan mánuð og maðurinn verður að sleppa fram af sér beislinu annað slagið," sagði Jackson.

Smelltu hér til að sjá myndband af miðherjanum í húlahoppi með Playboy-kanínunum, en ef marka má hreyfingar kappans ætti hann kannski að halda sig við körfuna.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×