Körfubolti

Rasheed Wallace fer til Boston Celtics

Ómar Þorgeirsson skrifar
Rasheed Wallace.
Rasheed Wallace. Nordic photos/AFP

Boston Celtics stefna á að endurheimta NBA-titilinn eftir vonbrigði síðasta tímabils og hafa nú styrkt liðið með því að tryggja sér þjónustu kraftframherjans Rasheed Wallace á frjálsri sölu frá Detroit Pistons.

Hinn 34 ára gamli Wallace kemur með mikla reynslu til Celtics en hann vann til að mynda NBA-titilinn með Pistons árið 2004.

Umboðsmaður kappans, Bill Strickland, staðfesti félagsskiptin í samtali við Boston Herald og Bolston Globe í gær og kvað skjólstæðing sinn ennfremur hafa neitað tækifærinu á að tala við Orlando Magic, San Antonio Spurs og Dallas Mavericks.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×