Körfubolti

Pietrus ætlar ekki að spila í Kobe-skónum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mickael Pietrus.
Mickael Pietrus. Nordic Photos/Getty Images

Orlando-maðurinn Mickael Pietrus mun skipta um skó fyrir leikina gegn LA Lakers í úrslitum NBA-deildarinnar enda hefur hann verið að leika í Kobe Bryant-skóm hingað til.

Honum finnst það ekki viðeigandi þar sem hann verður eitthvað í því að dekka Kobe í úrslitunum.

„Ég er með Kobe-skó heima hjá mér en ég mun spila í Michael Jordan-skóm í þessum leikjum," sagði Pietrus sem mun hafa fullt í fangi með að stöðva Kobe, sama hvaða skóm hann spilar í.

„Það eina sem ég get gert er að lágmarka þau skipti sem hann fær boltann í fjórða leikhluta. Hann er frábær leikmaður og það er ekki hægt að stöðva þessa leikmenn.

„Kannski er eina leiðin til að stöðva hann að kalla á hann og biðja hann um að stoppa," sagði Pietrus.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×