Körfubolti

Garnett hvíldur fram í síðasta deildarleik

Nordic Photos/Getty Images

Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics í NBA deildinni, hefur gefið það út að Kevin Garnett verði aðeins látinn spila síðasta deildarleik liðsins í vetur.

Garnett hefur verið að berjast við meiðsli á hné á vordögum og er þetta í fyrsta skipti á ferlinum sem hann á í teljandi vandræðum með meiðsli.

Hann sneri aftur í síðasta mánuði eftir að hafa misst úr 20 af 24 leikjum liðsins en þá ákváðu Boston-menn að setja hann alveg á hilluna því hann þótti ekki orðinn nógu góður í hnénu.

Garnett hefur ekki spilað síðan 25. mars en eins og gefur að skilja er liðinu mikið mál að koma varnarmanni ársins í fyrra af stað á ný fyrir úrslitakeppnina.

Síðasti leikur Boston í deildarkeppninni er gegn Washington á heimavelli á miðvikudaginn, en úrslitakeppnin hefst á fullu þann 18. apríl -eða eftir vikutíma.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×