Körfubolti

NBA-deildin: Meistararnir lágu heima gegn Houston

Ómar Þorgeirsson skrifar
Kobe Bryant fann sig ekki í tapi LA Lakers í nótt.
Kobe Bryant fann sig ekki í tapi LA Lakers í nótt. Nordic photos/AFP

Fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem hæst bar 91-101 sigur Houston Rockets gegn LA Lakers í Staples Center í Los Angeles.

Aaron Brooks var atkvæðamestur hjá Rockets með 33 stig en David Andersen kom næstur með 19 stig. Hjá Lakers var Ron Artest stigahæstur með 22 stig og Andrew Bynum skoraði 21 stig en stórstjarnan Kobe Bryant skoraði aðeins 18 stig sem þykir nú ekki merkilegt á þeim bænum.

Úrslitin í nótt:

LA Lakers-Houston 91-101

Oklahoma City-LA Clippers 93-101

Detroit-Dallas 90-95

Phoenix-Toronto 101-100





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×