Körfubolti

Sjáðu allar sigurkörfurnar í úrslitakeppninni

James konungur stimplaði sig enn frekar inn í sögubækur með ævintýralegri sigurkörfu í nótt
James konungur stimplaði sig enn frekar inn í sögubækur með ævintýralegri sigurkörfu í nótt Nordic Photos/Getty Images

Dramatíkin í úrslitakeppni NBA deildarinnar náði hámarki í nótt sem leið þegar LeBron James tryggði Cleveland ævintýralegan sigur á Orlando með flautukörfu.

Karfa James í nótt var sú dramatískasta til þessa, enda hefði Cleveland verið komið í mjög vond mál í einvíginu ef liðið hefði tapað öðrum leiknum í röð.

James er þó fjarri því að vera eini maðurinn sem hefur reynst hetja síns liðs í úrslitakeppninni til þessa, enda hafa úrslit margra leikja ráðist á síðustu sekúndunum.

Smelltu hér til að sjá flottustu flautukörfurnar í úrslitakeppninni til þessa. Efsta myndbandið er sigurkarfa LeBron James frá því í nótt sem leið.

Þess má geta að þriðji leikur LA Lakers og Denver Nuggets í úrslitum Vesturdeildar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 00:30 í nótt.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×