Körfubolti

Lamar Odom giftist Khloe Kardashian um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lamar Odom sést hér skoða kassa af Wheaties-morgunkorninu með mynd af meistaraliði Lakers.
Lamar Odom sést hér skoða kassa af Wheaties-morgunkorninu með mynd af meistaraliði Lakers. Mynd/AFP

Lamar Odom, framherji NBA-meistara Los Angeles Lakers, gekk í hnappahelduna um helgina þegar hann og sjónvarpsstjarnan Khloe Kardashian giftu sig heima í risavillu þeirra í Beverly Hills í Englaborginni.

Meðal gesta í brúðkaupinu voru félagar Odom í Lakers-liðinu, Luke Walton og Sasha Vujacic auk þess að Phil Jackson, þjálfari Lakers, mætti.

Odom er 29 ára gamall og hefur spilað í NBA-deildinni síðan 1999. Hann var lykilmaður í að hjálp Lakers (12,3 stig og 9,1 frákast í leik í úrslitakeppninni) til að vinna fimmtánda meistaratitilinn í sumar og gerði á endanum nýjan fjögurra ára samning við félagið eftir að hafa verið orðaður við önnur lið.

Kardashian er fjórum árum yngri en eiginmaðurinn en hún er hefur öðlast frægð með þátttöku sinni í raunveruleikaþættinum "Keeping Up With the Kardashians" en sá þáttur hefur verið sýndur í Bandaríkjunum síðan 2007 og er nú að hefja fjórða árið sitt.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×