Körfubolti

Iavaroni rekinn frá Memphis

NordicPhotos/GettyImages
Marc Iavaroni hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA deildinni.

Iavaroni náði ekki að koma arfaslöku liði Memphis á sigurbraut frekar en flestir forvera hans hjá félaginu og skilur hann við liðið með fimmta lélegasta árangur þjálfara í sögu NBA deildarinnar, 33 sigra og 90 töp - sem gerir 26,8% vinningshlutfall.

Talið er líklegt að það verði aðstoðarþjálfarinn Johnny Davis sem taki við af Iavaroni tímabundið, en það verður formlega tilkynnt í kvöld áður en liðið mætir New York Knicks.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×