Menning

Handjárnuð blóm

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar
Sigurður Pálsson.
Sigurður Pálsson.
Sigurður Pálsson, skáld og þýðandi, heldur í dag fyrirlestur sem hann kallar Handjárn á blómin – Vangaveltur um leikritaþýðingar. Fyrirlesturinn fer fram í Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 16.30.

Sigurður ætlar einkum að ræða þýðingu sína á leikritinu …og þeir settu handjárn á blómin eftir Fernando Arrabal. Hann mun einnig víkja að öðrum leikritum sem hann hefur þýtt, einkum Svölunum eftir Jean Genet, ásamt almennum vangaveltum um þýðingastarfið.

Á 35 ára ferli sem þýðandi hefur Sigurður þýtt bæði ljóð, skáldsögur, ritgerðir og leikrit. Fyrsta verkið sem hann þýddi var einmitt leikritið …og þeir settu handjárn á blómin. Leikritið fjallar um minningar, drauma og hugrenningar pólitískra fanga á Spáni, en höfundurinn sat þar sjálfur um tíma í fangelsi af pólitískum ástæðum.

Í erindi sínu ræðir Sigurður fyrst og fremst um þýðingarvinnuna við þetta verk en hann mun einnig velta fyrir sér þýðingastarfinu almennt, t.d. hvort hægt sé að læra af reynslunni og þá hvernig, þegar ljóst er að hverjum texta fylgja algjörlega ný vandamál. Hann mun þó helst dvelja við sértæk vandamál sem upp koma í leikritaþýðingum.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni um þýðingar öndvegisverka og er hún haldin á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og hafa margir af þekktustu þýðendum þjóðarinnar tekið þátt í henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.