Körfubolti

Lakers einum leik frá úrslitunum

Lamar Odom lék vel í nótt
Lamar Odom lék vel í nótt AP

Los Angeles Lakers vann í nótt 103-94 sigur á Denver í fimmta leik liðanna í úrslitarimmu Vesturdeildarinnar í NBA og leiðir því 3-2 í einvígi liðanna.

Lakers var á heimavelli í fimmta leiknum og getur tryggt sér sæti í lokaúrslitum NBA annað árið í röð með sigri í Denver annað kvöld.

Leikurinn í nótt var ótrúlega jafn framan af eins og sést á því að staðan var hnífjöfn eftir fyrsta, annan og þriðja leikhlutann. Taugar Lakers-manna héldu svo betur í lokaleikhlutanum sem þeir unnu 27-18.

Kobe Bryant skoraði 22 stig fyrir Lakers en fékk meiri hjálp frá aukaleikurum sínum að þessu sinni. Lamar Odom skoraði 19 stig, hirti 14 fráköst og varði 4 skot, en hann hafði að heita má verið í felum síðan í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Pau Gasol skoraði 14 stig, hirti 10 fráköst og varði 5 skot.

Hjá Denver var Carmelo Anthony stigahæstur með 31 stig, og Kenyon Martin og Chauncey Billups 12 hvor.

Phil Jackson þjálfari Lakers hefur 18 sinnum komist yfir 3-2 í sjö leikja einvígi í úrslitakeppni og hefur unnið 17 þeirra. Eina serían sem hann tapaði af þessum 18 var gegn Phoenix Suns árið 2006.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×