Körfubolti

Ray Allen bætti fyrir fyrsta leikinn og tryggði meisturunum sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ray Allen fagnar sigurkörfunni sinni í nótt.
Ray Allen fagnar sigurkörfunni sinni í nótt. Mynd/GettyImages

Ray Allen tryggði Boston Celtics 118-115 sigur á Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og er staðan því jöfn í einvíginu, 1-1. Leikurinn fór fram í Boston eins og sá fyrsti en næstu tveir verða spilaðir í Chicago.

Ray Allen skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir sendingu frá Rajon Rondo. Allen hitti úr 6 af 10 þriggja stiga skotum sínum í leiknum þar af komu tvær af þessum þriggja stiga körfum á síðustu 25 mínútunum.

Ray Allen hitti aðeins úr 1 af 12 skotum sínum í fyrsta leiknum sem Boston tapaði í framlengingu en í nótt skoraði hann 30 stig en 28 þeirra komu í seinni hálfleik eftir að hann fékk góð ráð frá þjálfara sínum, Doc Rivers.

Undir lok leiksins skiptust Ray Allen og Ben Gordon á því að setja niður mikilvæg skot en þeir voru báðir í miklu stuði í nótt. Báðir leikmennirnir koma líka frá UConn.

„UConn hefur skilað af sé mörgum frábærum leikmönnum. Þegar þú spilar á móti einhverjum frá UConn þá reynir þú að fara út og gera betur en hann. Það verður einhvers konar leikur innan leiksins," sagði Ben Gordon sem skoraði 42 stig í leiknum og vann því Allen en tapaði leiknum.

„Allen-Gordon skotkeppnin virtist vera orðin afar persónuleg og það var eins og þeir ætluðu að útkljá það hver væri besti UConn-leikmaðurinn frá upphafi, sagði Doc Rivers, þjálfari Boston eftir leikinn.

Það voru aðrir líka að spila vel hjá Boston. Rajon Rondo var með þrefalda tvennu í leiknum (19 stig, 16 stoðsendingar, 12 fráköst), Glen Davis skoraði 26 stig, Paul Pierce var með 18 strig og Kendrick Perkins var með 16 stig og 12 fráköst.

John Salmons skoraði 17 stig fyrir Chicago og Brad Miller var með 16 stig. Boston gekk mun betur að eiga við nýliðann Derrick Rose sem var „aðeins" með 10 stig og 7 stoðsendingar í þessum leik eftir að hafa verið með 36 stig og 11 stoðsendingar í fyrsta leiknum.







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×