San Antonio færði Clippers níunda tapið í röð 9. janúar 2009 09:35 Tony Parker skoraði 19 stig fyrir Spurs AP
Tveir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio vann 106-84 sigur á LA Clippers þar sem liðið stakk af í síðari hálfleik eftir að sá fyrri hafði verið jafn. Tony Parker var stigahæstur í jöfnu liði Spurs með 19 stig, Roger Mason skoraði 18 og Michael Finley 15. Tim Duncan skoraði aðeins 8 stig í leiknum en var með 9 stoðsendingar. Al Thornton og Eric Gordon skoruðu 21 stig hvor fyrr Clippers og Mardy Collins 16, en hann leysir meiddan Baron Davis af í byrjunarliðinu. Þetta var níunda tap Clippers í röð og hefur liðið aðeins unnið 8 leiki og tapað 27. Dallas vann New York heima 99-94 og hefur nú unnið níu af síðustu viðureignum liðanna í Texas. Dallas náði að sigra þrátt fyrir að Dirk Nowitzki næði sér aldrei á strik í leiknum og skoraði aðeins 10 stig. Þetta var aðeins í fimmta sinn á síðustu fimm árum sem hann skorar 10 stig eða minna, en hann var reyndar með 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Josh Howard var stigahæstur hjá Dallas með 19 stig og Jason Kidd 16, en hjá New York var Chris Duhon með 24 stig og Wilson Chandler með 20. Eddy Curry kom við sögu í þrjár mínútur hjá New York og var þetta fyrsti leikur hans í vetur með liðinu. New York hefur tapað níu af síðustu ellefu leikjum sínum. Í kvöld verður fjöldi leikja á dagskrá í NBA og rétt er að minna áhugafólk um NBA boltann á beina útsendingu á Stöð 2 Sport frá stórleik Cleveland og Boston klukkan eitt í nótt.
NBA Mest lesið Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira