Körfubolti

Nelson mun spila gegn Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nelson hefur verið í jakkafötunum síðustu vikur.
Nelson hefur verið í jakkafötunum síðustu vikur. Nordic Photos/Getty Images

Leikmenn Orlando Magic hafa tjáð fjölmiðlamönnum að Jameer Nelson muni spila með Magic gegn LA Lakers í úrslitum NBA-deildarinnar.

Leikmaðurinn sjálfur og þjálfari liðsins hafa hvorugir viljað ganga svo langt í yfirlýsingum sínum.

Nelson tók fulla æfingu með félögum sínum í gær. Þá fyrstu síðan hann meiddist þann 2. febrúar síðastliðinn.

Ef satt reynist og ef hann getur beitt sér almennilega verður það mikill styrkur fyrir Orlando-liðið enda frábær leikstjórnandi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×