Körfubolti

Lakers rúllaði yfir Houston í oddaleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe og Ron Artest faðmast í leikslok en þeir tókust fast á.
Kobe og Ron Artest faðmast í leikslok en þeir tókust fast á. Nordic Photos/getty Images

Los Angeles Lakers náði loksins að hrista Houston Rockets endanlega af sér í kvöld þegar liðin mættust í oddaleik í Los Angeles.

Lakers þar með komið í úrslit Vesturdeildar þar sem liðið mætir Denver.

Lakers hafði yfirburði í leiknum frá upphafi og vann öruggan sigur, 89-70. Houston náði aldrei að ógna Kobe og félögum sem sluppu þar með skrekkinn gegn meiðslahrjáðu Rockets-liði.

Pau Gasol var stigahæstur hjá Lakers með 21 stig. Ariza næstur með 15 en þeir Bynum og Kobe voru með 14.

Aaron Brooks var stigahæstur hjá Houston með 13 stig.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×