Körfubolti

Troðslukóngur handtekinn fyrir að keyra án ökuleyfis

Ómar Þorgeirsson skrifar
Nate Robinson.
Nate Robinson. Nordic photos/AFP

NBA-leikmaðurinn og troðslukóngurinn Nate Robinson hjá New York Knicks var handtekinn í Bronx í gær þegar uppgvötaðist að hann var að keyra án ökuréttinda þar sem ökuleyfið hans var ekki í gildi.

Robinson þarf að mæta fyrir rétt vegna málsins en leikmaðurinn bað forráðamenn New York Knicks og aðdáendur félagssins afsökunnar á hegðun sinni á Twitter-síðu sinni í gær.

New York vonast til þess að halda Robinson áfram hjá félaginu en hann getur yfirgefið félagið fái hann betri samning annars staðar.







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×