Körfubolti

Kobe með flautukörfu í framlengingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kobe Bryant í leik með LA Lakers.
Kobe Bryant í leik með LA Lakers. Mynd/AP

Kobe Bryant tryggði Lakers ótrúlegan sigur á Milwaukee með flautukörfu í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt, 107-106.

Þetta tókst honum þó svo að hann hafi spilað með spelku á hægri vísifingri en alls skoraði hann 39 stig í leiknum.

Leikurinn var jafn og spennandi. Andrew Bogut fékk reyndar tækifæri til að tryggja sínum mönnum sigurinn í lok venjulegs leiktíma er hann náði að fiska villu á varnarmann Lakers um leið og hann setti niður skot og jafnaði þar með leikinn, 95-95.

En hann klikkaði á vítalínunni og fékk því Lakers tækifæri til að klára leikinn í síðustu sókninni. Þá klikkaði hins vegar Kobe á flautukörfunni.

Milwaukee var með frumkvæðið í framlengingunni og komst í sex stiga forystu, 106-100, þegar ein og hálf mínúta var eftir.

Kobe svaraði strax með körfu en Eresan Ilyasova komst á vítalínuna í næstu sókn Milwaukee. Hann klikkaði á báðum vítaskotunum og Lakers fékk því tækifæri til að minnka muninn enn frekar.

Kobe keyrði inn í teig og náði að skora með miklum látum. Heimamenn töldu að um ruðning hefði verið að ræða en í staðinn fékk hann körfuna dæmda góða og vítakast þar að auki. Þar með var munurinn orðinn eitt stig. Hann tryggði svo sínum mönnum sigurinn með flautukörfu í blálok leiksins eftir að Michael Redd hafði klikkað á skoti fyrir Milwaukee skömmu áður.

Pau Gasol skoraði 26 stig fyrir Lakers og tók 22 fráköst. Ron Artest var með tíu stig.

Redd skoraði 25 stig fyrir Milwaukee og Ilyasova 24 stig.

Alls fóru tólf leikir fram í NBA-deildinni í nótt. Hér má sjá úrslit þeirra:

Atlanta Hawks - Memphis Grizzlies 110-97

Indiana Pacers - Charlotte Bobcats 101-98

Orlando Magic - Toronto Raptors 118-99

Philadelphia 76ers - Cleveland Cavaliers 101-108

New Jersey Nets - Utah Jazz 92-108

Milwaukee Bucks - LA Lakers 106-107

Minnesote Timberwolves - LA Clippers 95-120

New Orleans Hornets - Detroit Pistons 95-87

Oklahoma City Thunder - Dallas Mavericks 86-100

Denver Nuggets - Houston Rockets 111-101

Sacramento Kings - Washington Wizards 112-109

Golden State Warriors - San Antonio Spurs 91-103



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×