Fótbolti

Ásgeir er sá sem hefur komist næst úrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tony Morley og Allan Evans fagna sigri Aston Villa fyrir 27 árum.
Tony Morley og Allan Evans fagna sigri Aston Villa fyrir 27 árum. Mynd/GettyImages

Eiður Smári Guðjohnsen getur í kvöld orðið fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn sem spilar í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar Barcelona mætir Manchester United í Róm. Eiður Smári byrjar örugglega á bekknum og vonast örugglega ekki til að upplifa það sama og Ásgeir Sigurvinsson gerði fyrir 27 árum síðan.

Ásgeir Sigurvinsson er eini íslenski knattspyrnumaðurinn sem hefur komið nálægt úrslitaleik í Evrópukeppni meistaraliða. Ásgeir sat allan leikinn á bekk Bayern München sem tapaði 0-1 fyrir Aston Villa í úrslitaleiknum í Rotterdam í Hollandi 26. maí 1982.

Bayern München var betri aðilinn í leiknum en óþekktur varamarkvörður varði frábærlega (kom inná á 9. mínútu) og það var síðan Peter White sem skoraði sigurmark enska liðsins á 66. mínútu leiksins.

„Það voru tvöföld vonbrigði fyrir mig að þessi leikur skildi fara svona. Í fyrsta lagi tapaði Bayern og svo fékk ég ekkert að koma inná í leiknum. Tvær skiptingar áttu sér stað hjá okkur en ég var greinilega ekki í náðinni hjá þjálfaranum þetta kvöldið og varð að sitja á bekknum. Yfirleitt hef ég fengið að koma inná í Evrópuleikjum með Bayern en nú brást það," sagði Ásgeir í viðtali við Morgunblaðið daginn eftir.

Ásgeir lék meðal annars báða undanúrslitaleikina á móti ZSKA Sofia og var í byrjunarliðinu í fyrri leiknum í Búlgaríu.

Ásgeir yfirgaf Bayern München um sumarið og gekk til liðs við Stuttgart þar sem hann átti farsælan feril næstu átta tímabil eða þar til að hann lagði skónna á hilluna vorið 1990.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×